PLAYSTATION®3 Leikja Diskar
• Leikjahugbúnaður er eingöngu ætlaður til notkunar á heimilum í heimiluðum PLAYSTATION®3 vélum í Evrópu, Mið-Austurlöndum, Afríku og Ástralíu
• Ekki er heimilt að selja, leigja, gefa út, breyta, aðlaga eða þýða nokkurn hluta af leikjahugbúnaðinum
• Ekki er heimilt að nota leikjahugbúnað í auglýsingum, útvarpa honum, fá greiðslu fyrir notkun hans, nota hann í almennum spilasölum eða til annarar notkunar á meðal almennings án þess að fá leyfi frá Senu, umboðsaðila Sony Computer Entertainment Europe á Íslandi.
• Lögum samkvæmt má ekki á nokkurn hátt breyta. endugera, bakþýða eða baksmala nokkurn hluta af leikjahugbúnaðinum, né skapa einhverja afleiðu af virkni hans eða útbúa leikjahugbúnaðarkóða útfrá kóða hans.
• Ekki er heimilt að nota óheimilaðan, ólöglegan, falsaðan eða breyttan vélbúnað eða hugbúnað í tengslum við Leikjahugbúnaðinn til að komast hjá, óvirkja eða kringumfæra eitthvað af dulritunar, öryggis eða auðkenningar vélgengi PLAYSTATION®3 vélarinnar
• Ekki er heimilt að endurselja Leikjahugbúnað án þess að fá leyfi til þess beint frá Senu, umboðsaðila Sony Computer Entertainment Europe á Íslandi.
PlayStation® Store Niðurhölunar efni
• „In-game” hlutir og efni sem þú hefur keypt er hægt að niðurhala frá PLAYSTATION®Store. Samkvæmt ákveðnum notkunarskilmálum sem stjórnast af „in-game” hlutum og efni sem þú hefur keypt, þá matt þú nota þá hluti eða efni í allt að þremur (3) mismundandi PLAYSTATION®3 vélum sem þinn reikningur er virkur á. Þú getur gert tilteknar PLAYSTATION®3 vélar virkar eða óvirkar gagnvart þínum reikningi svo lengi sem tala PLAYSTATION®3 véla sem eru virkar gagnvart þínum reikningi eru ekki fleiri en þrjár (3).
• Það eru tvær gerðir notanda kerfa fyrir efnið, Samsvarandi þeim tveim flokkum af „in-game” hlutum og efni sem þú kaupir.
o Fyrsti flokkurinn, kallaður Net Hlutir eða „Network Content”. Hlutir og efni í þeim flokki er aðeins aðgengilegt af einni virkri PLAYSTATION®3 vél á dag og bara af þeim reikningi sem að þetta tiltekna „Network Content” var keypt af. Sumsé þetta „Network Content” getur ekki verið notað af tveim mismunandi PLAYSTATION®3 vélum á hverju 24. tíma tímabili.
o Annar flokkurinn, kallaður Staðbundnir Hlutir eða „Local Content”. Virkar þannig að um leið og efni eða hlutum í þeim flokki hefur verið sett upp á PLAYSTATION®3 vél af þeim reikningi sem keypti efnið eða hlutinn, þá hafa aðrir notendur á sömu PLAYSTATION®3 vél einnig aðgang að því efni eða hlut.
• Hvort tiltekinn hlutur eða efni er „Network Content” eða „Local Content” er geðþótta ákvörðun sem SCE eða umboðsaðilar þeirra geta einir breytt.
|