Breyta um landVöruleiðbeiningar
HomePlayStation 3PlayStation 2PSP (PlayStation Portable)
VélbúnaðurLeikirFréttirAukahlutirHjálp
Þá er að byrja
 
Allt sem þú þarft að vita til að byrja að nota PSP vélina þína

Setja rafhlöðuna í

1. Fjarlægðu rafhlöðulokið.
Aftan á PSP vélinni, haltu niðri PUSH takkanum og ýttu rafhlöðu lokinu í þá átt sem örin bendir.

2. Settur rafhlöðuna (Battery Pak) í.
Settu botninn á rafhlöðinni til móts við PSP vélina til þess að passi í.

3. Settu rafhlöðulokið á.
Settu tappana á lokinu í götin á PSP vélinni og renndu raflhlöðu lokinu að þannig að það læsist örugglega.

Hlaða rafhlöðuna

1. Tengdu í straumbreytinn.
Tengdu straumbreytinn við DC IN 5V tengið niðri hægramegin á PSP vélinni.

2. Tengdu í rafmagn.
Tengdu straumbreytinn í rafmagnsinnstungu. Þá ættir POWER ljósið að verða appelsínugult sem þýðir að hleðslan er hafin. Þegar POWER ljósið slökknar þýðir það að rafhlaðan er full hlaðin.

Memory Stick Duo (Minniskort) sett í

1. Settu minniskortið í
Opnaðu Memory Stick Duo raufina vinstramegin á PSP vélinni og settu minniskortið í í þeirri átt sem örin sýnir sem tryggir það að hliðin sem skrifað er á snýr frá þér.

2. Taka Memory Stick Duo úr
Til þess að taka minniskortið úr opnaru sömu rauf og ýtir minniskortinu varlega inn þannig að það losnar.

Forsníða Memory Stick Duo (Minniskort)
Þú verður að forsníða (format) minniskortið áður en þú notar það með PSP vélinni þinni. Með því að gera það þá verða nauðsynlegar möppur til þess að geyma og skoða skrár búnar til. Öll þau gögn sem fyrir eru á minniskortinu þurrkast út þegar það er forsniðið þannig að vert er að taka afrit af þeim gögnum ef þau eiga ekki að glatast.

1. Veldu „Format Memory Stick" valmöguleikann.
Þessi valmöguleiki finnst í [System Settings] valmyndinni undir [Settings].

2. Forsníða minniskortið
Spurt verður hvort þú viljir forsníða (format) minniskortið. Veltu þá „Yes" með örvartökkunum og ýttu á X til þess að halda áfram.

3. Staðfestu val þitt.
Þar sem að öll gögn þurrkast út þegar verið er að forsníða minniskortið er spurt aftur hvort þú viljir halda áfram. Til þess að halda áfram ýtiru á X takkann.

Veldu tungumál

1. Finndu [System Settings].
Þegar þú ert í aðalvalmyndinni notaru örvartakkana til þess að komast í og velja [Settings] > [System Settings].

2. Finndu Language Settings.
Notaðu örvartakkana til þess að komast í System Language valmöguleikann og ýttu á X takkan til að velja hann

3. Veldu tungumál
Notaðu örvartakkana til þess að velja tungumálið og ýttu á X takkann til þess að staðfesta val þitt.

Veldu tíma og dagsetningu

1. Finndu [Date & Time Settings].
Þegar þú ert í aðalvalmyndinni notaru örvartakkana til þess að finna [Settings] > [Date & Time Settings] og ýtir svo á X takkann til þess að velja.

2. Breyta stillingum.
Í þessari valmynd getur þú breytt dagsetningu og tíma (Date and Time), sniði dagsetningar (Date Format), sniði tíma (Time Format) og tímabelti (Time Zone). Vinsamlegast skoðaðu leiðbeiningar bækling PSP fyrir frekari upplýsingar.

Veldu Gælunafn
Þú verður að finna þér gælunafn til þess að aðgreina þig frá öðrum PSP notendum.

1. Finndu [System Settings].
Þegar þú ert í aðalvalmyndinni notaru örvatakkana til þess að finna [Settings]> [System Settings] og ýtir svo á X takkann til þess að velja.

2. Finndu Nickname.
Notaðu örvatakkana til þess að finna Nickname valmöguleikann og ýttu á X til að velja

3. Breyttu gælunafni.
Notaðu sýndarlyklaborð PSP til þess að breyta gælunafninu. Vinsamlegast skoðaðu leiðbeiningar bækling PSP fyrir frekari upplýsingar.



Hér getur þú lesið nýjust leiðbeiningar og hjálparleiðir fyrir PlayStation vélina þína
Lesa meira
PLAYSTATION 3 PlayStation 2 PSPHelp and SupportTools and Services
PS3 Fréttir
PS3 Leikir
PS3 Aukahlutir
PS3 Helstu Eiginleikar
PS2 Fréttir
PS2 Leikir
PS2 Aukahlutir
PS2 Partýleikir
PSP Fréttir
PSP Leikir
PSP Aukahlutir
Hugbúnaðaruppfærslur fyrir PS3 og PSP
Útgáfuáætlun
Breyta um land
Um okkurHafðu sambandLagaákvæðiPersónuskilmálarPLAYSTATION®3 og PLAYSTATION Net Lagaákvæði
Website © Sony Computer Entertainment Europe. All content, game titles, trade names and/or trade dress, trademarks, artwork and associated imagery are trademarks and/or copyright material of their respective owners. All rights reserved.[ frekari upplýsingar ]