Keyrðu einsog óður maður með adrenalínið í botni á PSP.
Með því að blanda saman því besta úr þessari mögnuðu seríu og fullt af aukaefni eingöngu fyrir PSP tekst höfundunum hjá Criterion að búa til alvöru hraðakstursleik með meðfærileika í huga.
Sextán mismunandi keppnir á 8 svæðum þar sem bensíngjöfinni er þrumað í gólfið. Lykillinn að sigri er að halda sér í Burnout gírnum með því að taka áhættu og þeytast eftir malbikinu.
Stuðningur við fjölspilun er gríðar góður og því minnsta mál fyrir þig að keppa við vini og vandamenn. Auk þess býður leikurinn upp á að samhæfa leikinn þinn með leikjum annara og fá þannig stiga- og tímamet sem þú getur svo lagt þig fram við að bæta.
|