Breyta um landVöruleiðbeiningar
HomePlayStation 3PlayStation 2PSP (PlayStation Portable)
VélbúnaðurLeikirFréttirAukahlutirHjálp
Helstu eiginleikar PLAYSTATION 3
Ertu forvitin(n) að vita hvað tæknin undir húddinu á PS3 vélinni hefur upp á að bjóða? Lestu um það hér.

finest games
Leikir
PlayStation hefur alltaf verið heimili fyrir marga af bestu leikjum heimsins frá hæfileikaríkustu leikjahönnuðunum allra tíma. Það er ekkert að breytast á PS3. Það eina sem hefur breyst eru hinir ólgandi möguleikar sem fylgja þeim svakalega krafti sem vélin hefur upp á að bjóða.

Þar sem allar PS3 tölvur hafa innbyggðan harðan disk sem og Blu-ray spilara geta leikjahönnuðir nú skapað áður óþekktar stærðir af heimum og nákvæmni í grafík. Vinnsluhraði vélarinnar býður einnig upp á að skapa raunverulegri hluti sem og ótrúlega gervigreind.

Þetta allt í blandi við háskerpu grafík og þú ert komin(n) með leiki sem að skáka öllum þeim leikjum sem þú hefur áður spilað.
Skoða meira
blu ray disc
Video
Þar sem PLAYSTATION 3 vélin býr yfir ótrúlegum vinnsluhraða og er hönnuð til þess að skila frá sér háskerpu grafík og tæru hljóði þá er Blu-ray tæknin einmitt rétta lausnin. Blu-ray diskar hafa mun meira geymslurými en áður hefur þekkst þar sem Blu-ray diskur getur geymt 25 - 50GB af gögnum á sitthvorri hlið á meðan t.d. DVD diskar geta aðeins geymt 4.7GB

Með þessu ógurlega geymslurými getur Blu-ray skilað af sér meira en fimm sinnum hærri upplausn þegar verið er að horfa á kvikmyndir og myndbrot sem að skilar sér í skýrari mynd, skarpari litum og tærari hljóm.

En Blu-ray diskarnir eru ekki bara fyrir kvikmyndir. Leikir græða heilan helling á öllu þessu geymslurými og eru möguleikarnir nær endalausir þegar leikjahönnuðir hafa allt þetta rými til að leika sér með og skilar það sér í stærri og betri leikjum.
Skoða meira
playstation network
Netmöguleikar
Skráðu þig inn á frítt netkerfi PLAYSTATION og þú færð aðgang að þjónustu sem gerir PS3 upplifunina þína enn betri. Núna getur þú spilað uppáhaldsleikina þína á netinu við fólk allstaðar í heiminum, spjallað við vini og vandamenn eða bara sent þeim skeyti.

Ef þig vantar eitthvað nýtt efni getur þú farið inn á PLAYSTATION®Store og þar hefur þú hefur aðgang að helling af leikjum, leikjaprufum af væntanlegum leikjum, myndbrotum í háupplausn af væntanlegum kvikmyndum og viðbótum við leiki. Einnig geturu skellt þér á internetið í innbyggðum vafrara vélarinnar.
Skoða meira
high definition
Video
Komdu á hinu fullkomna samstarfi með því að tengja PS3 vélina við háskerpu sjónvarp. Þar geturu upplifað ótrúlegar senur í mestu upplausn sem í boði er í dag - 1080p.

Þegar þú horfir á kvikmyndir eða spilar leiki í háskerpu verða kvikmyndirnar meira lifandi og leikirnir raunverulegri. Einnig getur þú skoðað ljósmyndirnar þínar kristaltærar á flatskjánum á mjög einfaldan hátt.

Cell Broadband EngineTM í PS3 gerir vélinni kleyft að vinna úr gríðar magni af upplýsingum á auðveldan hátt sem er nauðsynlegt til að horfa á háskerpu kvikmyndir og annað í háupplausn.
Skoða meira
hdmi cable
Náðu sem mestu úr PLAYSTATION 3 með þessum frábæru aukahlutum
Lesa meira
gran_turismo_hd_promo_2
Gran Turismo HD
Smelltu
PLAYSTATION 3 PlayStation 2 PSPHelp and SupportTools and Services
PS3 Fréttir
PS3 Leikir
PS3 Aukahlutir
PS3 Helstu Eiginleikar
PS2 Fréttir
PS2 Leikir
PS2 Aukahlutir
PS2 Partýleikir
PSP Fréttir
PSP Leikir
PSP Aukahlutir
Hugbúnaðaruppfærslur fyrir PS3 og PSP
Útgáfuáætlun
Breyta um land
Um okkurHafðu sambandLagaákvæðiPersónuskilmálarPLAYSTATION®3 og PLAYSTATION Net Lagaákvæði
Website © Sony Computer Entertainment Europe. All content, game titles, trade names and/or trade dress, trademarks, artwork and associated imagery are trademarks and/or copyright material of their respective owners. All rights reserved.[ frekari upplýsingar ]