Byggður á nýjustu kvikmyndinni um uppáhalds vefskapara allra. Í Spider-Man 3 getur þú skellt þér í hlutverk hins rauðklædda Spider-Man og nú, í fyrsta skiptið, einnig í svarta dularfulla búningnum. Einnig er hægt að spila Green Goblin í PS3 útgáfu leiksins.
Þrjú uggvænleg gengi eru að reyna að sölsa undir sig hverfin í New York borg og þau verður að stoppa. Sem Spider-Man getur þú komið röð og reglu á borgina ellegar fer allt í vitleysu og stjórnleysi grípur um sig í borginni. Frábær gerfigreind gerir þó Spider-Man erfitt fyrir þar sem þeir umkringja kappann, grípa hann og kalla jafnvel á liðsauka ef illa gengur.
Spider-Man getur nú ferðast um í stærra, meira lifandi rými í New York sem gefur spilurum frelsi til þess að leysa glæpina í borginni á sinn hátt. Fullt af endaköllum, þrautum og óvinum koma þér í rétta Spider-Man gírinn þar sem þú sveiflar þér um háhýsi New York borgar.
|