Tilfinninganæmni, falleg grafík og vel hannaðir karakter sýna að Heavenly Sword nýtir þann ógnar kraft sem PlayStation 3 hefur upp á að bjóða.
Dramatísk saga af hefnd þar sem Nariko, eldrauðhærð hetja fer í leiðangur til að hefna sín á Konungi og hans her sem hefur ráðist inn í landið. Sagan snýst um Himneska Sverðið (Heavenly Sword) sem eitt sinn var eign öflugs dýrlings. Sverðið er svo öflugt að enginn dauðlegur maður getur notað það þar sem það sýgur úr honum lífsþróttinn og drepur á nokkrum klukkustundum. Þegar innrásar Konungurinn (leikinn af Andy Serkis úr Lord of the Rings og King Kong) útrýmir hernum sem verndar Himneska Sverðið reynir dóttir höfðingja þeirra, Nariko, að nota sverðið í örvæntingarfullri tilraun til þess að lifa af. Nariko verður nú að fórna hinni hinstu fórn og ráða niðurlögum konungins og her hans áður er lífi hennar er lokið.
Heavenly Sword sameinar frábæran hasar og grafík sem að minnir á bestu hasarmyndir okkar tíma með ótrúlegum hreyfingum og frjálslegu bardagakerfi. Auðvelt er að skipta á milli margra gerða af sverðum og ýmsum öðrum vopnum á meðan þú þýtur í gegnum borðin einsog vindurinn. Nýjasta tækni hvað varðar eðli hluta í tölvuleikjum er notuð í bardögum sem skilar sér gríðar mikilli eyðileggingu þegar þú stútar óvininum eða umhverfinu. Berstu í gegnum fangandi umhverfi þar sem bardaginn getur leiðst yfir vatn, á trjátoppum, upp til skýja og allt þar eftir götunum. Óvinirnir eru mun snjallari en gerist og berjast nú í hópum eða ráðast á þig einn og einn. Hóparnir geta skipt þúsundum sem færir fram einhverja mögnuðustu gervigreind sem sést hefur í tölvuleikjum.
• Þrjár mismunandi bardagstöður - Skiptu á milli þeirra á augabragði til að mynda þinn eigin bardagastíl
• Eðlislægur Bardagi - Notaðu hluti gegn óvininum, sparkaðu borðum í hóp óvina til að tefja þá, hentu óvini í hina og þessa hluti eða hentum þeim einfaldlega í hvorn annan
• Leikarar á borð við Andy Serkis og Steven Berkoff ljá leiknum hæfileika sína • Stórt safn af hlutum og vopnum á borð við margskerandi spjót og uggvænlega sprengjuvörpur
|