Með því að nýta kraft PLAYSTATION 3 vélarinnar tekst Fight Night Round 3 að færa þér einhvern raunverulegasta hnefaleikaleik allra tíma.
Hér er á ferðinni einn magnaðasti hnefaleikaleikur allra tíma og auðvitað inniheldur hann einn magnaðasta hnefaleikamanni allra tíma, Muhammed Ali. Ótrúleg grafík og spilun leyfir þér að prófa hvernig það er að standa í hringnum á móti heimsmeistara.
Leikurinn notar afl vélarinnar til þess að gera bardagann sem raunverulegastann. Hnefaleikakapparnir eru ótrúlega raunverulegir þar sem lekandi sviti, þrútnir voðvar og víkkandi æðar gera það að verkum að hnefaleikakapparnir eru nánast mættir inn í stofu til þín. Einnig er hægt að skella sér í netspilun í leiknum og berjast þannig við hnefaleikamenn um allan heim.
• Ótrúlega raunverulegir bardagar með magnaðri grafík sem tryggja þér ótrúlega raunverulega bardaga
• Aðeins á PS3 er hægt að fara í spilunarmöguleika á borð við „Get in the Ring” og skipta skjánum (split-screen) þannig að þú getir barist við félagana.
• Endurlifðu mögnuðustu bardaga sögunnar með haug af goðsögnum í hnefaleikaheiminum
|