Farðu í gegnum leiðarvísinn okkar skref fyrir skref og þú getur notið þess besta sem PlayStation 2 hefur upp á að bjóða á augabragði.
Tengjast við sjónvarp í gegnum AV tengi
Þear þú kaupir PlayStation 2 þá fylgir með V snúra sem að tengir PS2 vélina við sjónvarp Tengdu lituðu tengin á öðrum endanum við tengin með sama lit á sjónvarpinu. Gula tengið fer í gula gatið (Myndin), rauða fer í rauða (hægri hljóðrás) og hvíta í hvíta (vinstri hljóðrás). Vert er að taka það fram að ef þú ert með mono sjónvarp þá ekki tengja rauða tengið (Ef þú ert ekki viss um hvort þú sért með mono sjónvarp eða vantar meiri upplýsingar þá vinsamlegast athugaðu PlayStation leiðbeiningar bæklinginn fyrir frekari upplýsingar) Stilltu sjónvarpið svo á rétta rás (AV rásinu) með fjarstýringunni Tengdu AV snúruna svo við tengið aftan á PS2 vélinni merkt „AV MULTI OUT".
Tengjast sjónvarpi með SCART tengi
Auk AV snúru þá fylgir með breytistykki svo hægt sé að tengja PlayStation 2 tölvuna við SCART tengi með AV snúrunni. Þetta er nauðsynlegt fyrir alla þá sem að hafa og vilja nota SCART tengið á sjónvarpinu sínu. Tengdu lituðu tengin við samsvarandi liti á breytistykkinu. Tengdu svo við SCART tengið á sjónvarpinu þínu (oftast aftan á sjónvarpinu).
Fyrir frekari upplýsingar varðandi tengingar við sjónvarpið og önnur kerfi vinsamlega lesið PlayStation 2 leiðbeiningar bæklinginn.
Spila leik/DVD/CD
Núna ertu tengdur og til í slaginn. Kveiktu á PlayStation 2 vélinni þinni með því að ýta á „MAIN POWER" takkann aftan á leikjavélinni (Skiptu frá 0 fyrir í 1) Það kemur rautt ljós á (RESET) takkann framan á PS2 vélinni sem gefur til kynna að vélin er viðbúin. Ýttu á (RESET) takkann framan á PS2 vélinni. Þá kemur grænt ljós á takkann og byrjunar skjámyndin birtist á sjónvarpinu þínu. Tengdu DualShock stýripinnann í viðeigandi tengi framan á PS2 vélinni þinni. Til þess að setja disk í vélina ýtiru á „Open" takkan framan á PS2 vélinni og setur diskinn í drifið þannig að hliðin með merkingunum snúi upp. Lokaðu drifinu með því að ýta á „Open" takkann aftur. Fylgstu svo því sem kemur á skjáinn til þess að halda áfram.
Náðu bestu myndgæðunum úr PlayStation 2 vélinni þinni
Það fylgir Composite AV snúra með öllum PlayStation 2 vélum sem tengir vélina við sjónvarpið með lituðu tengjunum (gult, hvítt og rautt) eða í gegnum breytistykki sem tengist svo í SCART tengið. Þetta er vegna þess að næstum öll sjónvarp nútímans geta tengst þessar tilteknu snúru.
Hinsvegar hafa mörg sjónvörp aðra tengimöguleika og PlayStation 2 bíður upp á ýmsar gerðir snúra sem að eru sérstaklega tilbúnar til þess að bæta bæði mynd- og hljómgæði.
Þessi leiðarvísir er gerður til þess að útskýra mismuninn á milli þessara mismunandi leiða til þess að tengja PlayStation 2 vélina við sjónvarp og hjálpa þér að finna hvaða leið hentar þér best.
S-Video
Sum sjónvarp sem að hafa þessi lituðu tengi (gult, rautt og hvítt) hafa oft einnig auka S-Video tengi. S-ið stendur fyrir Super sem að gefur til kynna að myndgæðin eru mun betri í gegnum þetta tengi en hið hefðbundna tengi.
Hið hefðbundna S-Video tengi sendir myndina í gegnum tvær línur. Önnur línan sendir upplýsingar um birtu á meðan hin línan sendir upplýsingar um lit.
Með því að skipta myndinni upp svona fæst skarpari mynd. Þessi staðlaða S VIDEO snúra tryggir að bæði PlayStation spilunin og DVD áhorfið nýtur góðs af betri mynd og litagæðum.
RGB
RGB tenging fer skrefinu lengra en S-Video gerir þar sem hún sendir skiptir myndinni upp í þrennt, þ.e.a.s. í þrjá grunnlitina (rauðan, grænan og bláan) og sendir þá svo eftir þremur mismunandi línum.
Þar sem sjónvarpið þitt vinnur nú þegar eftir þessu RGB merki þá þýðir það að RGB skilaboðin frá PlayStation 2 tölvunni þinni truflast lítið sem ekki neitt í gegnum þessa tengingu.
Þetta þýðir í raun að þessi tenging ætti að skila hæstum mögulegum gæðum fyrir PlayStation 2 leiki. Staðlaða AV snúran notast við sömu tækni og RGB til þess að koma skilaboðum um mynd yfir í PlayStation 2 vélina þína sem að ætti að tryggja hæstu mögulegu myndgæði fyrir PlayStation 2 leiki.
AV snúran tengist við sjónvarp í gegnum SCART tengi. Ef sjónvarpið þitt er með SCART tengi þá endilega athugaðu í bækling sjónvarpsins hvort það sé ekki fært um að taka við og nýta RGB sendinguna. Sum sjónvörp hafa mörg SCART tengi en þá eru yfirleitt bara eitt til tvö af þeim sem að eru fær um að nýta RGB tenginguna.
Ath: Ef þú notar AV snúruna þegar þú ert að horfa á DVD þá gæti allt orðið grænt á skjánum. Þetta er afritunarvörn PlayStation 2 að verki.
Component Video (Y, Cb/Pb, Cr/Pr)
Líkt og RGB þá notast Component Video við þrjár línur þegar hún sendir upplýsingar nema hvað hún sendir aðeins öðruvísi upplýsingar. Fyrsta línan (Y) sendir upplýsingar um birtu eða upplýsingar um svart og hvítt. Önnur og þriðja línan (Cb/Pb og Cr/Pr) senda skilaboð um lita mismun, sem þýðir að þær gefa til kynna hversu mikið af bláum og rauðum er gagnvart birtunni. Það þarf ekki að senda skilaboð sér um græna litinn þar sem að sjónvarpið veit birtu upplýsingar sem og upplýsingar um rauða og bláa litinn og setur því bara grænt í það sem eftir er. Component Video hagnast af RGB aðallega þegar verið er að horfa á DVD.
Þetta á auðvitað bara við ef að sjónvarpið þitt hefur þessi lituðu (rautt, blátt og grænt) component tengi. Það er vert að vita að til þess að PlayStation 2 tölvan noti Component Video almennilega þá verðuru að fara í „System Configuration" í aðal valmynd leikjatölvunnar (Aðal valmyndin fæst þegar kveikt er á PS2 án þess að diskur sé í). Þar ferðu í „Compontent Video Out" valmyndina og breytir „video output mode" frá RGB yfir í Y Cb/Pb Cr/Pr.
Náðu bestu hljóðgæðunum úr PlayStation 2 vélinni þinni
Flestir notendur njóta góðs af víðóma hljóði úr PlayStation 2. Hinsvegar þá styður PlayStation 2 einnig Dolby Digital og DTS (Digital Theatre Systems) hljóð. Ef þú vilt nýta þessa stafrænu víðóma eiginleika PlayStation 2 vélarinnar verður þú að tengja hana við hljómtæki sem að styður DTS eða Dolby Digital.
Hliðræn(analog) tenging
Ef að sjónvarpið þitt styður víðóma hljóð þá ætti tenging frá PlayStation 2 tölvunni í gegnum annaðhvort SCART eða Composite/Component tengið að skila víðóma hljóði.
Á hinn bóginn er hægt að tengja PlayStation 2 vélina beint við hljómtæki með stöðluðu AV snúrunni, S-Video eða Component AV snúru. Ef þú ert að nota stöðluðu AV snúruna þá þarftu einnig að versla þér staðlað AV Millistykki og tvær hliðrænar hljóðsnúrur (fánlegt í öllum betri raftækjaverslunum).
Hinsvegar þá gefur PlayStaton 2 vélin ekki frá sér starfrænt víðóma hljóð með þessum leiðum.
Stafræn tenging
PlayStation hefur Digital Out (Optical) tengi sem að leyfir þér að tengjast stafrænu hljómtæknum með því að nota optical digital snúru (fáanleg í öllum betri raftækjaverslunum). Gott er að vita að þessi snúra er einnig þekkt sem optical S/PDIF (Sony/Philips Digital Interface) eða TOSlink snúra.
PlayStation 2 ætti sjálfkrafa að nýta þessa snúru ef hún er tengd. Ef það er ekki málið þá einfaldlega fylgdu þessum leiðbeiningum: Kveiktu á PlayStation 2 vélinni án þess að diskur sé í vélinni (eða að diskadrifið sé opið) og þá ferðu í aðal valmynd PlayStation 2. Farðu í „System Configuration" valmyndina Veldu „DIGITAL OUT (OPTICAL)" valmöguleikann og breyttu stillingunni í „On". Veldu „Dolby Digital", „DTS" eða „MPEG" eftir því hvernig tegund af stafrænu hljóði þú ætlar að nota.
Vert er að vita að DVD-mynd verður að hafa stafræna hljóðrás svo hægt sé að nýta stafræna hljóðið
Vinsamlegast notastu við PlayStation 2 leiðbeiningar bæklinginn ef þig vantar frekari upplýsingar.
|