Breyta um landVöruleiðbeiningar
HomePlayStation 3PlayStation2PSP (PlayStation Portable)
VélbúnaðurLeikirFréttirAukahlutirHjálp
Todd Papy spurður spjörunum úr
Dagsetning: 17 08 2007
Meðlimir spjallrása playstation.com spyrja Todd Papy, yfirhönnuð God of War II, spjörunum úr.

God of War var gríðarlega vinsæll...Var erfitt að byrja að hanna God of War II eftir það eða framþróunin nokkuð augljós?
Todd: Í raun var alveg hellingur af hugmyndum í gangi. Við tókum fundið þar sem við hentum hugmyndum á milli eftir að við höfðum klárað fyrri leikinn þar sem það var svo mikið sem við náðum ekki að setja í hann. Það var því ákveðið að nota eitthvað af þeim hugmyndum og svo fundin leið til þess að nýta vélina til þess að gera þá hluti sem við vildum að myndu gerast.

Hvað varð til þess að leikurinn koma út á PS2 en ekki PS3? Freistuðust þig aldrei til þess að færa hann yfir á næstu kynslóð leikjatölva?
Í upphafi var ákveðið að leikurinn yrði gerður fyrir PlayStation 2 þannig að við spáðum ekkert í PS3. Við vissum að við gætum náð spiluninni fram með PlayStation 2 vélinni og hvað við gátum náð út úr henni. Ef við hefðum ákveðið að gefa hann út á PS3 þá hefðum við þurft að taka töluverðan tíma í að finna út hvað við þyrftum að gera til að ná sem mestu útúr vélinni þannig að við hefðum aldrei getað náð að gera jafngóðan leik á sama tíma.

Um hvað snýst hönnunin á God of War II eiginlega?
Ég hannaði borðin í leiknum og við þurftum að búa til svæði þar sem leikmenn hlaupa um eða lenda í þrautum, hvaða hurðir á að opna, hvar hlutir liggja og svoleiðis.

Hvernig byrjar maður að hanna leik einsog God of War II?
Stærsti parturinn er að vita hvað við gerðum ekki rétt í fyrri leiknum. Fólk sér God of War sem frábæran leik á meðan við sjáum gallana. Kannski var ekki nóg af endaköllum eða sumar þrautir of erfiðar. Þannig að við setjumst aftur við teikniborðið og segjum, ef að aðdáendurnir vilja fleiri endakalla, þá fá þeir fleiri endakalla. Við ákváðum líka að bæta við fleiri undir-vopnum. Það var eitt í fyrsta, Blade of Artemis, en í þessum höfum við tvö. Svona spáum við í öllum hlutum og reynum að bæta þá einsog við getum.

Hvað hefur þetta framhald God of War fram að bjóða fyrir þann sem hefur aldrei spilað God of War?
Fyrir þá sem spiluðu fyrri leikinn er þetta einsog að komast í kynni við gamlan vin. En fyrir hina þá ættu þeir að vera nokkuð fljótir að læra inn á leikinn og njóta alls þessu magnfengna sem við bjóðum uppá.

Hvað finnst besta nýjungin við God of War II?
Ég er að fíla hvernig Kratos notar sverðin sitt sem króka til þess að hanga í. Og svo er það einn partur í leiknum sem ég held að fólk eigi ekki eftir að trúa að sé framkvæmanlegur á PS2 þegar það sér hann.

Hver er helsti munurinn á fyrsta og öðrum leiknum?
Við erum bara búnir að bæta í. Þú getur flogið um á Pegasus, hangið hér og þar, nýjir endakallar og líka hvernig vopn og galdrar virka nú saman.En auðvitað forum við aldrei of langt frá upprunulega leiknum því það sýndi sig að við gerðum margt rétt þar sem við reynum svo bara að bæta í nýja leiknum.

Skoða allar fréttir
people_vs_todd_papy
Svipaðar krækjur
locoroco_demo_promo
LocoRoco
Sæktu demo-ið núna
PLAYSTATION 3 PlayStation 2 PSPHelp and SupportTools and Services
PS3 Fréttir
PS3 Leikir
PS3 Aukahlutir
PS3 Helstu Eiginleikar
PS2 Fréttir
PS2 Leikir
PS2 Aukahlutir
PS2 Partýleikir
PSP Fréttir
PSP Leikir
PSP Aukahlutir
Hugbúnaðaruppfærslur fyrir PS3 og PSP
Útgáfuáætlun
Breyta um land
Um okkurHafðu sambandLagaákvæðiPersónuskilmálarPLAYSTATION®3 og PLAYSTATION Net Lagaákvæði
Website © Sony Computer Entertainment Europe. All content, game titles, trade names and/or trade dress, trademarks, artwork and associated imagery are trademarks and/or copyright material of their respective owners. All rights reserved.[ frekari upplýsingar ]