Frá höfundum ICO kemur einstök saga í stórum stíl.
Allt frá því að ICO sigraði hug og hjörtu leikjagagnrýnenda og spilar árið 2001, hafa allir beðið eftir framhaldinu með mikilli eftirvæntingu. Loksins hefur framhaldið litið dagsins ljós í stórkostlegum leik, Shadow of the Colossus. Leikur sem, svipað og undanfari hans, á eftir að skrifa sig í sögubækurnar
Leikurinn fjallar um ungan dreng sem reynir allt hvað hann getur til að bjarga sál ungrar stúlku. Til þess þarf hann að finna og ráða niðurlögum 16 goðsagnakenndra risa. Með aðeins sverð, boga og örvar að vopni þeysist hann um á fáki sínum, Agro, í leit sinni að risunum.
• Frá þeim sömu og gerðu hinn margverðlaunaða ICO
• Finndu og knésettu 16 ótrúlega risa, allir mismunandi að stærð og lögun
• Kannaðu gríðar stór landsvæði í gríðar fallega hönnuðum leik