Bandaríkja menn vilja hafa hlutina stóra, stórir bílar, stórir hamborgara og stór mittismál og leikirnir verða ekki mikið stærri en Grand Theft Auto: San Andreas.
GTA serían er eflaust það heitasta á markaðnum síðan að Space Invaders hækkuðu Celsius skalann um tvær gráður. Núna hefuru heilar 3 borgir til þess að rugla í. Hvort sem það er Las Santos, San Fierro eða Las Venturra sem verða fyrir barðinu á þér þá er nokkuð ljóst að það verður eitthvað stuð. Margir telja þennan leik þann besta í seríunni og þar af leiðandi einn besta leik sem til er á PlayStation 2. Vertu því velkominn til San Andreas, góða skemmtun.
• Ekki bara borg heldur heilt fylki til að rugla í
• Fáðu glæpa menn til liðs við þig til að koma ruglinu í gang
• Breyttu andhetjunni þinni með því að klæða hann, greiða og skreyta einsog þú vilt til þess að fá virðingu hjá genginu þínu
• Frábær lög frá 10. áratugnum tryggja að þú ert í rétta gírnum
|