Keyrðu einsog vitleysingur með adrenalínið í botni á PS2.
Burnout Dominator er nýjasta framhaldið í hinni sívinsælu og margverðlaunuðu Burnout Seríu, troðfull af kappakstri og mótum til að missa sig í.
Burnout Dominator nýtir sér PS2 vélina til fullnustu og skilar þannig svaðalegasta hraða og spennu sem sést hefur á vélinni þar sem þú þrumar bensíngjöfinni niður í gólf, rígheldur í stýrið og vonar að þú náir að klára eiturharða brautina.
|