Breyta um landVöruleiðbeiningar
HomePlayStation 3PlayStation 2PSP (PlayStation Portable)
LeikirFréttir & GreinarÚtgáfuáætlunHjálp
PSP Hugbúnaðaruppfærslur
 
Þú getur hlaðið niður nýjastu PSP hugbúnaðauppfærslunni til þess að fá allt það sem PSP hefur upp á að bjóða.

Til þess að fá sem mest úr PSP vélinni þinni skaltu ganga úr skugga um að þú sért með nýjasta hugbúnaðinn á PSP vélinni.

Þú getur séð hvaða útgáfa af hugbúnaði er á PSP vélinni þinni með því að fara í [Settings] og velja [System Settings]. Þar veluru svo System Information til þess að sjá hvaða útgáfa af hugbúnaðinum þú ert með (System Software Version).

Þú getur uppfært hugbúnaðinn með einhverjum af eftirfarandi leiðum.

Net Uppfærsla (Network Update)
Notaðu þráðlausa net PSP vélarinnar til þess að hlaða niður nýjasta hugbúnaðinum á vélina þína í gegnum þráðlaust Internet eða heitan reit (Hot Spot).

Einkatölvu Uppfærsla (PC Update)
Þú getur hlaðið niður nýjustu uppfærslunni á einkatölvu sem tengd er við Internetið og síðan fært uppfærsluna yfir á PSP vélina þína með því að nota USB snúru með Mini-B tengi.

1. Sjáðu til þess að það sé nægt geymslurými laust á minniskortinu (Memory Stick Duo) sem er í PSP vélinni.
2. Tengdu PSP vélina þína við einkatölvuna með því að nota USB snúru með Mini-B tengi.
3. Kveiktu á PSP vélinni þinni og farðu í Settings > [USB Connection] í aðal valmyndinni og ýttur á X takkann til þess að koma USB tengingunni á. Tölvan þín ætti þá að finna PSP vélina sem utanáliggjandi drif.
4. Opnaðu þá drifið sem möppu á tölvunni þinni og búðu til möppu, ef hún er ekki nú þegar til, fyrir uppfærsluna. Búðu til möppu á minniskortinu sem heitir 'PSP'. Í 'PSP' möppunni skaltu búa til möppu sem heitir 'GAME' og svo í 'GAME' möppunni skaltu búa til möppu sem heitir 'UPDATE' (passið að nefna allar möppurnar með hástöfum (stórum stöfum) því annars þekkir PSP vélin ekki möppurnar).
5. Veldu Hlaða niður frá PSP Hugbúnaðaruppfærslu hluta PlayStation .is og veldu samþykkja. Vistaðu svo skránna í UPDATE möppuna á minniskortinu.
6. Þegar búið er að hlaða skránni niður skaltu aftengja PSP vélina frá tölvunni.
7. Sjáðu til þess að PSP vélin sé í hleðslu og ýttu á hringinn til þess að slökkva á USB tengingunni. Farðu þá í Game > [Memory Stick] og veldu update data.
8. Fylgdu svo leiðbeiningunum sem birtast á skjánum til þess að uppfæra PSP vélina þína.
9. Þegar því er lokið getur þú eytt uppfærsluskránni af minniskortinu.


Ef þú ert ekki með USB snúru sem hefur Mini-B tengi þá getur þú fært skrár frá tölvunni þinni yfir á minniskortið með því að nota Magic Gate samhæfðan USB Memory Stick búnað.

Upplýsingar um þjónustu
support family
Ef þig vantar aðstoð varðandi PlayStation vélina þína þá endilega hafðu samband og við hjálpum þér sem best við getum.

Tölvupóstur: playstation@sena.is

Opnunartímar: 9:00 - 17:00

Sími:591- 5100
psp system software
killzone_liberation_demo_promo
Killzone: Liberation
Sæktu
PLAYSTATION 3 PlayStation 2 PSPHelp and SupportTools and Services
PS3 Fréttir
PS3 Leikir
PS3 Aukahlutir
PS3 Helstu Eiginleikar
PS2 Fréttir
PS2 Leikir
PS2 Aukahlutir
PS2 Partýleikir
PSP Fréttir
PSP Leikir
PSP Aukahlutir
Hugbúnaðaruppfærslur fyrir PS3 og PSP
Útgáfuáætlun
Breyta um land
Um okkurHafðu sambandLagaákvæðiPersónuskilmálarPLAYSTATION®3 og PLAYSTATION Net Lagaákvæði
Website © Sony Computer Entertainment Europe. All content, game titles, trade names and/or trade dress, trademarks, artwork and associated imagery are trademarks and/or copyright material of their respective owners. All rights reserved.[ frekari upplýsingar ]