Hér geturu séð hverju uppfærsla 1.80 bætir við PS3 vélina þína.
Uppfærsla fyrir PS3 vélina var gefið út 24. maí 2007. Ef þú uppfærir PS3 vélina þína þá fer hún í hugbúnaðarútgáfu 1.80 og eftirfarandi hlutir uppfærast.
Helstu hlutir sem eru nýir eða endurbættir í útgáfu 1.80Uppskala leik eða DVD úttak

Núna getur þú uppskalað myndskeið PlayStation og PlayStation 2 hugbúnaðar sem og þú getur fært DVD myndir yfir í háupplausn.
Remote Play í gegnum InternetiðNúna getur þú notað Remote Play í gegnum Internetið.
Afritað vistuð skjöl yfir á minniskort

Núna geturu afrita vistuð skjöl af PlayStation og PlayStation 2 hugbúnaði yfir á minniskort eða Memory Card (8MB) (fyrir PlayStation 2).
Notast við DLNA biðlarann
Núna geturu birt myndir, spilað tónlist eða video sem eru vistuð á einkatölvunni eða á stafrænu upptökutæki með DLNA biðlara í gegnum net.
Aðrir nýir eða endurbættir hlutir í útgáfu 1.80Stillingar
* [BD 1080p 24 Hz Output (HDMI)] hefur verið bætt við sem möguleika undir [BD/DVD Settings].
* [RGB Full Range (HDMI)] hefur verið bætt við sem möguleika undir [Display Settings].
* [Y Pb/Cb Pr/Cr Super White (HDMI)] hefur verið bætt við sem möguleika undir [Display Settings].
* [Bit Mapping (Super Audio CD)] hefur verið bætt við sem möguleika undir [Music Settings].
* [Test Camera] möguleikinn undir [Accessory Settings] hefur verið breytt í [Camera Device Settings].
* [Printer Settings] hefur bæst við.
* [Media Server Connection] hefur verið bætt við sem möguleika undir [Network Settings].
Tónlist
* Núna getur þú breytt upplýsingum um geisladiska.
Ljósmyndir
* Ný gerð af skyggnusýningar munstri hefur verið bætt við.
* Núna getur þú nýtt þér aðdrátt á myndir.
* Núna getur þú klippt myndir.
Video
* Super-White og x.v.Colour úttök eru nú studd.
* Niðurskalað úttak af Blu-ray diskum er nú stutt. Þegar 720p er valið sem video úttaks stillingar fyrir Ps3 vélina þá geta Blu-ray diskar sem voru gerðir í 1080i/1080p upplausn geta nú verið spilaðir í 720p upplausn.
Leikir
* Þú getur núna fært óafritanleg vistuð skjöl fyrir PlayStation og PlayStation 2 hugbúnað yfir á PS3 vélina.
Netmöguleikar
* Valmyndin fyrir [Download Management] hefur breyst.
Vinir
* [Display Photo] hefur verið bætt við voice / video chat möguleikann.
Ath:
* Þessi hugbúnaðaruppfærsla inniheldur allt það sem var í fyrri útgáfum.
* Þessi nýja hugbúnaðaruppfærsla varðveitir allar stillingar sem voru fyrir á PLAYSTATION 3 vélinni.
*Sumir hugbúnaðartitlar munu ekki spilast fyrr en PS3 vélin hefur verið uppfærð.
* Alls ekki uppfæra með því að nota gögn sem koma ekki frá Sony Computer Entertainment í gegnum netið eða á diski, ekki notast við uppfærslu aðferðir aðrar en þær sem eru gefnar upp á þessari síðu. Ef uppfærsla er gerð með því að nota gögn eða aðferðir annars staðar frá gæti PS3 vélin ekki virkað rétt sem og að gefnar uppfærslur virka ekki. Einnig tapast ábyrgð frá Sony Computer Entertainment.