Þú getur hlaðið niður nýjustu PS3 hugbúnaðar uppfærslunni hér.
Þetta er stýrihugbúnaðurinn fyrir PLAYSTATION 3 vélina þína. Hann stjórnar öllu, þar á meðal hverskonar gerð af gögnum þú getur skoðað á PLAYSTATION 3 vélinni þinni.
Sem og að halda PS3 vélinni þinni í topp ástandi með nýjustu öryggis uppfærslum, foreldra stjórnun (Parental Control) og skjástillingum þá getur uppfærslan bætt á möguleika PS3. Nýjar stillingar, nýir möguleikar og ný virkni getur verið innifaldar í uppfærslunni þar sem hugbúnaðurinn þróast. Aðeins PS3 vél með nýjustu uppfærslunni getur nýtt til fullnustu þessar viðbætur.
Hver og ein uppfærsla er númerið svo að þú getir á fljótlegan hátt séð hver nýjasta útgáfan er, því hærri sem talan er því nýrri er uppfærslan. Til dæmis er 1.6 nýrri útgáfa en 1.5
Til þess að finna hvaða útgáfa af hugbúnaðinum er á þinni PLAYSTATION 3 vél ferðu í aðalvalmyndina og í Settings flokkinn. Þar veluru [System Settings] og verð þaðan í [System Information]. Þar sérðu hvaða útgáfu þú ert með af PLAYSTATION 3 hugbúnaðinum.
Til þess að finna út hver nýjasta fáanlega uppfærslan er geturu farið á eu.playstation.com og farið þar í PLAYSTATION 3 Help & Support til að finna hana og hlaða henni síðan niður.
Þú getur uppfært hugbúnaðinn með einhverjum af eftirfarandi leiðum:
Kerfis uppfærsla (System Update) - Ef PS3 vélin þín er nettengt þá er einfaldasta leiðin til þess að uppfæra hugbúnaðinn með því að nota PS3 vélina sjálfa. Farðu í aðalvalmyndina og þar í Settings flokkinn. Þar veluru [System Update] og svo [Update via Internet] og PS3 vélin þín athugar hvort þú ert með nýjustu útgáfuna af hugbúnaðinum. Ef ekki þá hleður hún uppfærslunni niður og setur hana upp fyrir þig.
PC Uppfærsla (PC Update) - Farðu á eu.playstation.com til þess að fá nýjustu uppfærsluna fyrir hugbúnað PS3. Fylgdu upplýsingunum sem er gefnar þar til þess að hlaða henni niður á heimilis/einkatölvuna.
Til þess að færa svo uppfærsluna á PLAYSTATION 3 vélina þina skaltu vista skránna á geymslu tæki einsog t.d. minniskort, USB drif eða PSP.
Áður en þú byrjar skaltu nota heimilistölvuna þína til þess að búa til möppu sem heitir 'PS3' á því tæki eða stað sem þú ætlar að nota. Í þeirri möppu skaltu svo búa til aðra möppu sem heitir 'UPDATE' (nafnið á möppunni verður allt að vera skrifað með hástöfum). Þegar þú UPDATE mappan er tilbúin skaltu færa uppfærsluna yfir í hana.
Þegar það er búið að vista uppfærsluna í möppuna skalt aftengja tækið og tengja það við PS3 vélina þína í annaðhvort minniskorta raufarnar eða í gegnum USB tengið, eftir því hvað þú ert að nota.
Þegar búið er að tengja skal fara í Settings valmyndina og velja þar [System Update] og síðan [Update via Storage Media]. Þar skaltu velja tækið sem þú ert að nota og PS3 mun setja upp uppfærsluna sem er geymd þar.
Ath: aðeins fyrir 1.60 útgáfu af hugbúnaðaruppærslunni geta notendur sem ekki hafa nettengingu pantað geisladisk (CD) sem inniheldur uppfærsluna.
Fyrir frekari upplýsingar, smelltu hér.