Breyta um landVöruleiðbeiningar
HomePlayStation 3PlayStation 2PSP (PlayStation Portable)
LeikirFréttir & GreinarÚtgáfuáætlunHjálp
Persónuskilmálar
 
Vefur þessi er starfræktur af Sony Computer Entertainment Europe Limited, 10 Great Marlborough Street, London W1F 7LP, United Kingdom (“SCEE”).

Við starfrækjum fjölda vefsíða, sumar hverjar gefa þér tækifæri á að skrá þig eða láta okkur í té persónulegar upplýsingar um þig sjálfan. Skráning er nauðsynleg til að komast inná ákveðin svæði á síðunum eða til að taka þátt í viðburðum. Eftirfarandi texti veitir innsýn inní hvernig þessar upplýsingar eru notaðar og hvernig á að hafa samband við okkur ef þú hefur spurningar.

1. Hverskonar upplýsingum söfnum við?
Ef þú kýst að skrá þig á síðum okkar, gætum við beðið um upplýsingar á borð við nafn, netfang, póstfang, aldur, kyn, símanúmer og upplýsingar um vörur. Síður okkar gætu einnig bætt þar við könnunum sem hægt er að velja um að svara, spurningum um ykkar alit á hinum ýmsu vörum og þjónustu. Ef þú hleður niður efni af síðum okkar, munum við sjálfkrafa skoða hvaða vélbúnað þú ert með. Ef þú notar ákveðin samskiptatól, gætum við geymt efni þeirra og samtöl sem að þú sendir og tekur við, og við áskiljum okkur rétt að fylgjast með samskiptum þínum. We gætum einnig fylgst með athöfnum þínum og áherslum þegar þú heimsækir síðuna okkar. (sjá kaflann um “Cookies” hér að neðan).

Vinsamlegast fáðu alltaf samþykki fyrir upplýsingum þegar þú skráir upplýsingar einhvers annars (til dæmis, þegar þú sendir vini þínum upplýsingar um atburði eða keppnir). Vinsamlegast gangið úr skugga um að allar persónulegar upplýsingar sem þú veitir séu réttar og nýlegar, og láttu okkur vita ef eitthvað breytist.

2. Hvað við gerum við upplýsingarnar sem við söfnum?
Við notum upplýsingarnar sem við söfnum á ýmsan hátt:
til að starfrækja vefsíður okkar og gefa upplýsingar um þjónustuna sem þú biður um, þar á meðal niðurhal, spjallherbergi, spjallsíður, kynningar og keppnir.
til að afgreiða spurningar sem koma frá ykkur í gegnum þjónustulínu okkar
til innri greiningar og rannsókna til að bæta vefsíður okkar og aðrar vörur og þjónustu
til að senda þér fréttabréf og markaðsupplýsingar um PlayStation vörur og þjónustu, og tilboð, vörur og þjónustu frá þriðja aðila, en aðeins eins og tilgreint er í lögum (sjá “Hvernig á að afskrá sig” hér að neðan)
til að senda ykkur post (til dæmis ef þú gleymir lykilorðinu þínu)
til að koma í veg fyrir og koma uppum svind og misnotkun á síðum okkar og þjónustu.

3. Hverjir aðrir hafa aðgang að upplýsingunum þínum
Samstarfsaðilar, dreifingaraðilar og aðrar stofnanir sem vinna fyrir okkur gætu fengið aðgang að upplýsingum þínum til að flokka þær fyrir okkur og til að færa þér upplýsingar og þá þjónustu sem þú biður um. Sum þessara fyrirtækja gætu þurft að vinna þessi gögn í löndum utan Evrópska Efnahagssvæðisins, t.d. í Bandríkjunum og Japan. Lög um meðferð gagna í þessum löndum gætu verið frjálsari en hjá EES. Ef þú ert ekki sátt/ur við að við forum með gögnin á þennan hátt, ættir þú ekki að nota vefsíður okkar.

Í undantekningar tilfellum, gætum við þurft að láta upplýsingar um þig af hendi ef lögin krefjast þess eða ef við þurfum að verja okkur eða aðra gegn ólöglegu athæfi. Ef fyrirtæki okkar er selt eða endurskipulagt, gætum við flutt gögnin sem hluta af þeirri breytingu.

4. “Cookies”
Sumar vefsíður okkar innihalda svokallaðar “cookies” , en það eru litlar textaskrár sem að vefsíðan sendir í tölvuna þína til að kanna netnotkun. “Cookies” gætu verið notaðar á vefsíðunni okkar til að hjálpa við að gera síðurnar meira ykkur að skapi. Þú getur aftengt “Cookies” með því að stilla netvafrann, við ábyrgjumst ekki að síðurnar okkar virki að fullu sé það gert.

5. Öryggi
Við gerum allt sem í okkar valdi er til að vernda persónulegar upplýsingar þínar. Þar á meðal erum við með ferla sem lágmarka óleyfilegan aðgang. Hinsvegar getum við ekki tryggt að við náum að koma í veg fyrir að einhver brjótist inní kerfin okkar.


Spjallsvæði og önnur samfélagssvæði á síðunum okkar eru opin öllum. Þú ættir ekki að gefa upplýsingar um þig hér, þar sem við erum ekki ábyrg fyrir því að vernda þær upplýsingar.

6. Börn
Við gerum allt til að tryggja öryggi barna og upplýsingar um þau. Við biðjum alla þá sem heimsækja síðurnar og eru undir 13 ára aldri til að fá leyfi foreldra eða forráðarmanna áður en þau láta upplýsingar á netið.

7. Hvernig á að segja upp áskrift
Ef þú vilt ekki fá frekari upplýsingar frá okkur um markaðsmál og fleira, fylgdu þá krækjunum sem koma fram á markaðspóstunum eða farðu á skráningarsvæði síðunnar og láttu vita þar. Ef þú ert ekki skráður á síðunum okkar, sendu þá póst á unsubscribe@eu.playstation.com þar sem málefnið “Unsubscribe” er sett í hausinn.

8. Hafið samband
Ef þú hefur einhverjar almennar spurningar, hafður samband við þjónustuborð okkar, en upplýsingar um það eru á http://eu.playstation.com/

Þú átt lagalegan rétt að vita hvaða persónulegar upplýsingar fyrirtæki hafa um þig og hvernig þær eru unnar. Ef þú vilt vita hvaða upplýsingar við höfum sendu þá post á dpo@scee.net sem að er Data Protection Officer, Sony Computer Entertainment Europe Limited, 10 Great Marlborough Street, London W1F 7LP, United Kingdom, þar þarf að koma fram heimilsfang vefsíðunnar þar sem þú ert skráð/ur. Athugið að við gætum beðið um sannanir um hver þið eruð og gætum rukkað fyrir afgreiðsluna.





media manager promo
Media Manager fyrir PSP
Frekari
PLAYSTATION 3 PlayStation 2 PSPHelp and SupportTools and Services
PS3 Fréttir
PS3 Leikir
PS3 Aukahlutir
PS3 Helstu Eiginleikar
PS2 Fréttir
PS2 Leikir
PS2 Aukahlutir
PS2 Partýleikir
PSP Fréttir
PSP Leikir
PSP Aukahlutir
Hugbúnaðaruppfærslur fyrir PS3 og PSP
Útgáfuáætlun
Breyta um land
Um okkurHafðu sambandLagaákvæðiPersónuskilmálarPLAYSTATION®3 og PLAYSTATION Net Lagaákvæði
Website © Sony Computer Entertainment Europe. All content, game titles, trade names and/or trade dress, trademarks, artwork and associated imagery are trademarks and/or copyright material of their respective owners. All rights reserved.[ frekari upplýsingar ]