Þessi vefsíða er starfrækt af Sony Computer Entertainment Europe Limited, 10 Great Marlborough Street, London W1F 7LP, United Kingdom (“SCEE”).
Við starfrækjum fjölda vefsíða með mismunandi eiginleikum. Þessir notendaskilmálar eru gerðir til að leiðbeina um hvernig þú getur notað vefsíður okkar, þó að allir möguleikar séu ekki fyrir hendi á öllum síðunum. Okkar síður geta verið aðeins í ákveðnum löndum og á ákveðnum tungumálum.
Með því að nota þessa síðu, samþykkir þú þessa notendaskilmála. Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessum skilmálum við og við, þannig að þú ættir að skoða þessa síðu reglulega og sjá hvort að einhverjar breytingar hafi verið gerðar. Auka skilmálar eiga við ef þú kaupir í gegnum síðurnar okkar, eða í sumum tilvikum ef þú tekur þátt í keppnum og atburðum. 1. Börn Hluti efnisins sem er á vefsíðu okkar gæti verið þess eðlis að það sé ekki fyrir börn a vissum aldri. Í sumum tilfellum munu vera merkingar sem segja til um hvaða aldurstakmarkanir eiga við. Foreldrar og forráðamenn ættu að hafa eftirlit með því þegar börn þeirra skoða vefsíðurnar og sérstaklega þegar þeir nota spjallrásirnar.
2. Höfundarréttur Allt efni á vefsíðunum e reign SCEE og samstarfsaðila. Mikið af efninu er höfundarréttarvarið með lögum um höfundarrétt. Efni má aðeins afrita til eigin nota, nema annað komi fram. Efni má ekki breyta, nota, gefa út eða setja fram í viðskiptalegum tilgangi. Engar tilraunir má gera til að brjóta upp læsingar sem verja efnið, nema viðeigandi lög leyfi slíkt.
3. Aðgangur Vefsíður okkar eiga að vera uppi stöðugt. Stundum geta síðurnar verið niðri og stundum geta þær innihaldið galla, eða verið niðri sökum viðgerða. Engin ábyrgð er á gæðum, virkni, aðgangi eða hraða á síðunum okkar. Við áskiljum okkur rétt til að breyta, eyða eða draga til baka efni af síðum okkar án fyrirvara. Þú ert ábyrgur fyrir greiðslum til þess þjónustuaðila sem sér um netaðgang þinn, ásamt öðrum greiðslum sem tengjast notkun á síðum okkar.
Þú matt ekki eyðileggja, eiga við eða trufla aðgang að síðunum okkar eða því efni sem þar er, né heldur gera eitthvað sem heftar virkni eða kemur í veg fyrir aðgang annarra að síðunum og efni þeirra. Þú mátt ekki nota síðurnar eða efni þeirra í ólöglegum tilgangi eða á þann hátt sem gæti skaðað SCEE, samstarfsaðila okkar eða einhvern aðila.
4. Samfélag Þú ert algjörlega ábyrgur fyrir öllum þeim texta, myndskeiðum, hljóði, myndum og öðru efni sem þú leggur inná síður okkar. Vinsamlegast notaður þau tæki og tól sem við veitum til myndunar samfélgs á ábyrgan hátt. Sérstaklega, ekki setja inn efni sem brýtur í bága við lög eða rétt þriðja aðila, eða efni sem inniheldur staðhæfingar sem eru saknæmar, óviðeigandi og móðgandi fyrir þjóðfélög, kyn, uppruna eða trú. Samfélagsþátt síðanna má ekki nota í viðskiptalegum tilgangi.
Þú veitir okkur rétt til að nota, afrita, breyta og gefa út það efni sem þú leggur til á síðurnar okkar. Þú gefur eftir þinn rétt á þessu efni.
Þú skilur að við getum ekki haft eftirlit með öllu því efni sem notendur leggja til og við höfum enga skildu til þess. Hinsvegar, áskiljum við okkur rétt til að hafa eftirlit með öllu slíku efni og án fyrirvara, að breyta eða eyða efni sem okkur þykir óviðeigandi. Þau sjónarmið sem koma fram á samfélagssvæðunum eru sjónarmið notendu og eru ekki sjónarmið SCEE, samstarfsfélaga okkar eða leyfishafa. Ef þú telur að eitthvert efni brjóti í bága við þessa notendaskilmála, vinsamlegast tilkynntu um það á netfangið community_admin@scee.net, eða notaðu “Alert” takkann (ef hann er til staðar), og settu þar inn í smáatriðum um hvað kvörtunin snýst og hvar á síðunum atvikið á sér stað.
5. Krækjur á önnur vefsvæði Við höfum ekki samþykkt eða athugað neitt af þeim síðum sem við tengju þriðja aðila og erum við ekki ábyrg fyrir þeim á neinn hátt né efni þeirra. Notkun þín á þessum svæðum þriðja aðila fellur undir notkunarskilmála þeirra.
6. Athugið SCEE ber ekki ábyrgð á nákvæmni, áreiðanleika né ástandi þeirra upplýsinga sem eru á síðum okkar. Í fyllstu túlkun laga, mun SCEE, leyfishafar og samstarfsaðilar þeirra ekki taka ábyrgð á tapi eða skemmdum sem þú eða þriðji aðili kunna að verða fyrir hvort heldur það sé beint eða óbeint, gert með vilja eða óviljandi eða hvernig sem þetta kann að hafa komið til eftir notkun þína á síðunum, þetta felur í sér tap á gögnum eða skaða sem gerist við að hlaða niður efni af síðunum okkar.
Þessir notkunarskilmálar hafa ekki áhrif á rétt þinn sem neytandi. Ef einhver hluti þessara notkrunarskilmála er dæmdur ólöglegur eða óframfylgjanlegur, gildir það sem eftir stendur af skilmálunum að fullu.
7. Lög Skilmálar þessir gilda fyrir enskum lögum. Samningurinn milli þín og SCEE er gerður í Englandi.
|